12. Gallerí
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að afrita, breyta, flytja eða
framsenda sumar myndir, tónlist (þar á meðal hringitóna) og annað efni.
Þú getur stjórnað myndum, hreyfimyndum, hljóðskrám, þemum, grafík, tónum,
upptökum og mótteknum skrám. Skrárnar eru vistaðar í minni tækisins eða á
meðfylgjandi minniskorti og hægt er að raða þeim í möppur.
Tækið inniheldur opnunarlyklakerfi til varnar aðfengnu efni. Ætíð skal kanna
afhendingarskilmála alls efnis og opnunarlykla áður en það er sótt þar sem það getur
verið háð greiðslu.