Ísetning microSD-korts
Aðeins skal nota samhæf microSD kort sem Nokia samþykkir til notkunar með þessu
tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum kort
sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta skaðað kortið og
tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.
1. Slökktu á tækinu, renndu bakhliðinni af því og taktu rafhlöðuna úr því.
2. Renndu festingu minniskortsins til að opna hana (1).
3. Opnaðu festinguna (2) og settu minniskortið í hana
þannig að snerturnar snúi inn á við (3).
H a f i s t h a n d a
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
14
4. Lokaðu festingunni (4) og renndu henni til þar til hún
smellur á sinn stað (5).
5. Settu rafhlöðuna í tækið og settu svo bakhlið þess aftur á það.