SIM-kortið og rafhlaðan sett í símann
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá seljanda SIM-kortsins. Þetta
getur verið þjónustuveitan eða annar söluaðili.
Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-4B rafhlöðu. Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia.
Sjá „Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia“, bls. 69.
SIM-kortið og snertiflötur þess geta hæglega skemmst ef kortið rispast eða bognar. Því
þarf að fara varlega með kortið þegar það er sett í símann eða tekið úr honum.
1. Ýttu á sleppitakkann (1) til að
losa um og fjarlægja
bakhliðina (2). Fjarlægðu
rafhlöðuna eins og sýnt er á
myndinni (3).
H a f i s t h a n d a
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
13
2. Opnaðu (4) SIM-
kortafestinguna. Settu SIM-
kortið í (5) þannig að
snerturnar snúi niður í
höldunni. Lokaðu raufinni (6).
3. Gættu að á snertum
rafhlöðunnar (7) og settu
rafhlöðuna í (8). Settu efri hluta
bakhliðarinnar á tækið (9) og
lokaðu henni (10).