Stillingar kallkerfis
Veldu Valmynd > Kallkerfi > Kallk.stillingar og svo einhvern af eftirtöldum
valkostum:
● 1 við 1 símtöl — Veldu Kveikja til að leyfa móttöku tveggja manna símtala. Til að
stilla tækið þannig að það láti vita með hringitóni þegar einhver reynir að kalla þig
upp fyrir tveggja manna samtal skaltu velja Tilkynna.
● Sjálfv. val kallk.takka — til að stilla kallkerfistakkann á eina af eftirtöldum
aðgerðum: Opna tengiliðalista, Opna rásalista eða Hringja í teng./hóp. Veldu
tengilið, hóp eða Hringja í kallkerfisrás og svo rás. Valkosturinn er notaður þegar
kallkerfistakkanum er haldið inni.
● Sýna innskrán. mína — til að heimila eða banna sendingu á innskráningarstöðu
● Kallk.tenging v. ræs. — Til að tengjast kallkerfisþjónustunni sjálfkrafa um leið og
kveikt er á tækinu skaltu velja Já eða Spyrja fyrst.
● Kallkerfi í útlöndum — til að slökkva eða kveikja á kallkerfisþjónustunni þegar
tækið er notað utan heimasímkerfis
● Senda vistfang mitt — Veldu Nei til að fela kallkerfisvistfang þitt fyrir hópum og
einstaklingum.