Raddupptökutæki
Þú getur tekið upp tal, hljóð eða símtal í gangi og vistað þau í Gallerí. Þetta er t.d.
gagnlegt til að taka upp nafn og símanúmer sem skrifa á niður síðar.
Hljóð tekið upp
1. Veldu Valmynd > Miðlar > Upptökutæki. Til að nota grafísku takkana ,
eða á skjánum skaltu skruna til vinstri eða hægri að viðkomandi takka og velja
hann.
2. Veldu til að hefja upptökuna. Til að hefja upptöku meðan á símtali stendur skaltu
velja Valkostir > Taka upp. Á meðan símtal er tekið upp heyra allir viðmælendur
dauft tónmerki. Á meðan símtal er tekið upp skal halda tækinu í venjulegri stöðu við
eyrað. Til að gera hlé á upptökunni velurðu .
3. Veldu til að hætta upptöku. Upptakan er vistuð í Gallerí > Upptökur.
Veldu úr eftirfarandi Valkostir:
● Spila síð. upptöku — til að hlusta á nýjustu upptökuna
● Senda síð. upptöku — til að senda nýjustu upptökuna
● Upptökuskrá — Veldu Upptökur til að skoða lista yfir upptökur í Gallerí
● Velja minni — til að velja minni símans eða minniskort til að vista upptökuna eða
breyta möppunni.