Nokia 7500 Prism - Sérþjónusta

background image

Sérþjónusta

Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að

vera fyrir hendi. Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu. Ekki er hægt að

nota þessa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið

fram á sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar ásamt upplýsingum um

gjald fyrir þjónustuna fást hjá þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir

sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla

séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða

ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið kann

einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð og táknum valmynda að hafa verið

breytt. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP

samskiptareglum. Fyrir sumar aðgerðir í símanum, eins og MMS

(margmiðlunarskilaboð), tölvupóst, spjallskilaboð, ytri samstillingu og niðurhal efnis

með vafra eða MMS, þarf símkerfisstuðning við viðkomandi tækni.

U m t æ k i ð

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

9