Númeraval
1. Sláðu inn símanúmerið ásamt svæðisnúmerinu.
Til að hringja á milli landa skaltu ýta tvisvar sinnum á * takkann til að hringja úr
landinu (+ táknið kemur í stað 00), velja landsnúmerið, svæðisnúmerið (án 0, ef þörf
er á því) og síðan símanúmerið.
2. Hringt er í símanúmer með því að ýta á hringitakkann. Til að stilla hljóðstyrkinn
meðan á símtali stendur er ýtt á hljóðstyrkstakkana.
3. Til að ljúka símtali eða hætta við að hringja ýtirðu á hætta-takkann.
Þú getur leitað að vistuðu nafni eða símanúmeri í Tengiliðir.
Sjá „Leit að
tengilið“, bls. 36.
Ýttu á hringitakkann til að hringja í númerið.
Þegar ýtt er einu sinni á hringitakkann í biðstöðu opnast listi með þeim símanúmerum
sem hringt hefur verið í. Hringt er í númer með því að velja það (eða nafn) og ýta á
hringitakkann.