Nokia 7500 Prism - Raddstýrð hringing

background image

Raddstýrð hringing

Hægt er að hringja með því að segja þau nöfn sem eru vistuð á tengiliðalista tækisins.
Raddskipanir eru háðar tungumáli. Velja þarf Tungumál raddk. áður en raddval er

notað.

Sjá „Sími“, bls. 45.

Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi eða

í neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar aðstæður.
1. Í biðstöðu er hægri valtakkanum eða neðri hljóðstyrkstakkanum haldið inni. Stutt

hljóðmerki heyrist og Tala núna birtist.

2. Segðu nafn þess sem þú vilt hringja í skýrt og greinilega. Ef síminn ber kennsl á

skipunina birtir hann þær færslur sem passa við hana í lista. Tækið spilar raddskipun

færslunnar sem er efst á listanum. Ef hún er ekki rétt skaltu fletta að annarri færslu.

Notkun raddskipana svipar til raddstýrðra hringinga.

Sjá „Raddskipanir“, bls. 41.