18. SIM-þjónusta
SIM-kortið kann að bjóða upp á meiri þjónustu. Þú getur einungis opnað þessa valmynd
ef SIM-kortið þitt styður hana. Heiti og efni valmyndarinnar fer eftir þjónustunni sem er
í boði.
Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá seljanda SIM-kortsins. Þetta
getur verið þjónustuveitan eða annar söluaðili.
Hægt er að láta símann sýna staðfestingarboðin sem eru send á milli símans og
símkerfisins þegar SIM-þjónustan er notuð með því að velja Valmynd > Stillingar >
Símastillingar > Staðf. SIM-aðgerðir > Já.
Áður en hægt er að fá aðgang að þessari þjónustu kann að vera nauðsynlegt að send
séu boð eða hringt sé úr símanum sem þú þarft þá að greiða fyrir.