Sending skilaboða
Veldu Senda til að senda skilaboðin. Síminn vistar skilaboðin í Úthólf möppunni og
sendir þau svo.
Til athugunar: Tækið kann að staðfesta að skilaboð hafi verið send á númer
skilaboðamiðstöðvar sem hefur verið vistað í tækinu. Ekki er víst að tækið staðfesti að
skilaboðin hafi borist viðtakanda. Þjónustuveitan veitir nánari upplýsingar um
skilaboðaþjónustu.
Ef truflun verður á sendingunni gerir síminn nokkrar tilraunir til að senda skilaboðin. Ef
það mistekst að senda skilaboðin eru þau áfram í Úthólf möppunni. Til að hætta við að
senda skilaboð sem eru í Úthólf-möppunni skaltu velja skilaboðin og svo Valkostir >
Hætta við sendingu.