Margmiðlunarskilaboð
Stillingar skilaboða hafa áhrif á sendingu, móttöku og skoðun margmiðlunarskilaboða.
Hægt er að fá stillingar fyrir margmiðlunarskilaboð í stillingaboðum frá
þjónustuveitunni.
Sjá „Stillingaþjónusta“, bls. 11.
Einnig er hægt að slá stillingarnar inn
handvirkt.
Sjá „Stillingar“, bls. 46.
Veldu Valmynd > Skilaboð > Skilaboðastill. > Margmiðlunarboð og svo einhvern
eftirfarandi valkosta:
● Tilkynningar um skil — Veldu Já til að láta símkerfið senda skilatilkynningar um
skilaboðin þín (sérþjónusta)
● Takmarkanir MMS — Veldu Takmarkanir til að útbúa margmiðlunarskilaboð með
efnistakmörkunum. Þannig verður líklegra að sá móttökutækið geti birt efnið.
● Stærð (án takm.) — til að stilla myndastærð í margmiðlunarskilaboðum Ef settar
eru takmarkanir mun efni með mikilli upplausn, sem líklegt er að sé ekki hægt að
birta í sumum símkerfum, ekki vera tiltækt.
S k i l a b o ð
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
34
● Sjálfg. tími skyggna — til að skilgreina sjálfgefinn tíma á milli skyggna í
margmiðlunarskilaboðum
● Virkja MMS-móttöku — Veldu Já eða Nei til að leyfa eða loka á móttöku
margmiðlunarskilaboða. Ef Í heimasímkerfi er valið er ekki hægt að taka við
margmiðlunarskilaboðum utan heimasímkerfisins. Sjálfgefin stilling
margmiðlunarskilaboða er yfirleitt Í heimasímkerfi. Það veltur á símanum hvort
þessi valmynd sé til staðar.
● Móttekin MMS — til að leyfa sjálfkrafa móttöku margmiðlunarskilaboða, handvirkt
eftir kvaðningu eða hafna móttöku skilaboðanna. Þessi stilling sést ekki ef Virkja
MMS-móttöku er stillt á Nei.
● Leyfa auglýsingar — til að leyfa eða hafna móttöku auglýsinga. Þessi stilling er ekki
sýnd ef Virkja MMS-móttöku er stillt á Nei eða Móttekin MMS er stillt á Hafna.
● Stillingar samskipana — Veldu Samskipun til að birta stillingarnar sem styðja
sendingu margmiðlunarskilaboða. Veldu þjónustuveitu, Sjálfgefnar eða Eigin
stillingar fyrir margmiðlunarskilaboð. Veldu Áskrift og MMS-reikning sem er
innifalinn í virku stillingunni.