
Textaskilaboð
Stillingar textaskilaboða hafa áhrif á sendingu, móttöku og skoðun textaskilaboða og
SMS-tölvupósts.
Veldu Valmynd > Skilaboð > Skilaboðastill. > Textaboð og svo einhvern af
eftirtöldum valkostum:
● Tilkynningar um skil — Veldu Já til að láta símkerfið senda skilatilkynningar um
skilaboðin þín (sérþjónusta)
● Skilaboðamiðstöðvar — Veldu Bæta við miðstöð til að stilla símanúmer og nafn
skilaboðamiðstöðvarinnar sem þarf til að geta sent textaskilaboð. Þú færð númerið
hjá þjónustuveitunni.
● Skilab.miðst. í notkun — til að velja hvaða skilaboðamiðstöð á að nota.
● Gildistími skilaboða — til að velja hversu lengi símkerfið reynir að koma
skilaboðunum þínum til viðtakenda
● Skilaboð send sem — til að velja snið skilaboðanna sem á að senda: Texta,
Símboð eða Fax (sérþjónusta)
● Nota pakkagögn — Veldu Já til að velja GPRS sem SMS-flutningsmáta.
● Leturstuðningur — Veldu Fullur til að senda alla stafina í skilaboðum eins og þeir
birtast. Ef þú velur Minni stuðningur kann sérstöfum, líkt og kommustöfum, að vera
breytt yfir í aðra stafi.
● Svara um sömu miðs. — Veldu Já til að leyfa viðtakanda skilaboðanna að senda
þér svar í gegnum sömu skilaboðamiðstöð (sérþjónusta).