
Spjallforritið
Þegar þú tengist við spjallþjónustuna sést staða þín (eins og aðrir sjá hana) í stöðulínu:
Staða: tengd/ur, Staða: Upptekin/n eða Sta.: Virð. ótengd. Til að breyta eigin stöðu
velurðu Breyta.
Undir stöðulínunni eru þrjár möppur sem innhalda tengiliðina þína og sýna stöðu þeirra:
Samtöl, Tengd/ur () og Ótengd/ur (). Mappan er víkkuð með því að fletta að henni og
velja Víkka (eða fletta til hægri).
Mappan er felld saman með því að velja Fella (eða fletta til vinstri).
● Samtöl — sýnir listann yfir ný og lesin spjallskilaboð eða boð meðan spjalltenging
er virk:
S k i l a b o ð
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
30

táknar ný hópskilaboð
táknar lesin hópskilaboð
táknar ný spjallskilaboð
táknar lesin spjallskilaboð
táknar þátttökuboð
Það hvaða tákn og textar birtast á skjánum fer eftir spjallþjónustunni.
● Tengd/ur () — sýnir fjölda tengiliða sem eru tengdir
● Ótengd/ur () — sýnir fjölda tengiliða sem eru ótengdir
Til að hefja samtal opnarðu nettengdu eða ótengdu möppuna og velur tengiliðinn
sem þú vilt spjalla við og velur Spjall. Til að svara þátttökuboði eða svara skilaboðum
opnarðu möppuna Samtöl og velur tengiliðinn sem þú vilt spjalla við og velur
Opna.
● Hópar > Almennir hópar — Listi yfir bókamerki í almenna hópa sem þjónustuveitan
lætur í té (birtist ekki ef kerfið styður ekki hópa). Til að hefja nýtt spjall við hóp velurðu
hópinn og síðan Taka þátt. Sláðu inn heitið sem þú vilt nota sem gælunafn í spjallinu.
Þegar tengst hefur verið við hóp er hægt að spjalla við tengiliði hans. Hægt er að búa
til einkahópa.
Sjá „Hópar“, bls. 32.
● Leit > Notendur eða Hópar — til að leita að öðrum spjallnotendum eða almennum
hópum á símkerfinu eftir símanúmeri, skjánafni, tölvupóstfangi eða nafni. Ef valið er
Hópar er hægt að leita að hóp eftir meðlim í hópnum, heiti hópsins, efni eða kenni.
● Valkostir > Spjall eða Taka þátt í hópi — til að hefja spjall þegar þú hefur fundið
notanda eða hóp sem þú leitaðir að