Tölvupóstur lesinn og honum svarað
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Tölvupóstboð og
margmiðlunarboð geta innihaldið skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið
á einhvern annan hátt.
Ef sækja á tölvupóst sem hefur verið sendur á tölvupóstreikninginn þinn skaltu velja
Valmynd > Skilaboð og tölvupóstreikninginn þinn. Staðfestu til að tengjast við
pósthólfið þitt Tölvupóstforritið sækir aðeins tölvupósthausa til að byrja með. Veldu
tölvupóst og ýttu á Opna til að hlaða niður tölvupóstskilaboðunum í heild sinni. Ýttu
niður til að skoða allan póstinn. Veldu Sækja til að hlaða niður viðhengjum. Veldu
Valkostir > Svara til að svara tölvupósti. Staðfestu eða breyttu netfangi og titli
S k i l a b o ð
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
27
tölvupóstsins og skrifaðu síðan svarið. Veldu Senda til að senda svarið. Til að rjúfa
samband við pósthólfið skaltu velja Valkostir > Aftengjast. Samband við pósthólfið
er sjálfkrafa rofið eftir tiltekinn tíma þar sem engar aðgerðir eiga sér stað.