
Tölvupóstur skrifaður og sendur
Þú getur skrifað tölvupóst áður en þú tengist við tölvupóstþjónustuna, eða tengst fyrst
við tölvupóstþjónustuna og síðan skrifað tölvupóstinn og sent.
1. Veldu Valmynd > Skilaboð > Búa til skilaboð > Tölvupóstskeyti.
2. Ef fleiri en eitt pósthólf er tilgreint skaltu velja það sem þú vilt senda tölvupóstinn
úr.
3. Sláðu inn tölvupóstfang viðtakandans, titil (efni) póstsins og megintextann. Til að
bæta við skrá velurðu Bæta v. og úr valkostunum.
Veldu Valkostir > Vista skilaboð til að vista tölvupóstinn. Ef þú vilt breyta eða
halda áfram að skrifa póstinn síðar skaltu velja Sem drög.
4. Ýttu á Senda til að senda tölvupóstinn.
Til að senda tölvupóst úr drögum velurðu Valmynd > Skilaboð > Drög og skilaboðin
sem þú vilt senda.