
Skeiðklukka
Hægt er að taka tíma, lotutíma eða millitíma með skeiðklukkunni. Hægt er að nota aðra
valkosti tækisins á meðan verið er að mæla tímann.
Notkun skeiðklukkunnar eða keyrsla hennar í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru
notaðar krefst aukinnar rafhlöðuorku og minnkar líftíma rafhlöðunnar.
Veldu Valmynd > Skipuleggjari > Skeiðklukka og svo einhvern af eftirtöldum
valkostum:
● Millitímar — til að taka millitíma. Veldu Byrja til að hefja tímatökuna. Veldu
Millitími í hvert sinn sem taka á millitíma. Til að stöðva tímatökuna skaltu velja
Stöðva. Veldu Vista til að vista mældan tíma. Til að hefja tímatökuna aftur skaltu
velja Valkostir > Byrja. Nýja tímanum er bætt við fyrri tímann. Til að núllstilla
tímann án þess að vista hann skaltu velja Núllstilla.
● Hringtímar — til að taka hringtíma
● Halda áfram — til að skoða tímann sem þú hefur fært í bakgrunninn
● Sýna síðasta — til að skoða nýjustu tímatökuna ef skeiðklukkan hefur ekki verið
núllstillt
● Skoða tíma eða Eyða tímum — til að skoða eða eyða vistuðum tímum
Til að láta skeiðklukkuna halda áfram í bakgrunni ýtirðu á hætta-takkann.