Vekjarinn stöðvaður
Þegar tími vekjarans rennur upp gefur tækið frá sér vekjaratón og á skjánum blikkar
Vekjari! og gildandi tími, jafnvel þótt slökkt sé á tækinu.
Veldu Stöðva til að stöðva vekjarann. Ef tækið er látinn hringja áfram í eina mínútu,
eða ef stutt er á Blunda slokknar á vekjaraklukkunni í þann tíma sem hefur verið valinn
í Lengd blunds og síðan hringir hún aftur.
Ef vekjaraklukkan hefur verið stillt og tíminn rennur upp á meðan slökkt er á tækinu
kveikir það á sér og hringir. Ef valið er Stöðva er spurt hvort opna eigi tækið fyrir
símtölum. Veldu Nei til að slökkva á tækinu eða Já til að hringja og svara símtölum. Ekki
velja Já þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.