Öryggi
Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka símtöl eru í notkun (svo sem útilokun, lokaður
notendahópur og fast númeraval) getur samt verið hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Veldu Valmynd > Stillingar > Öryggi og svo einhvern af eftirtöldum valkostum:
● Krefjast PIN-númers og Krefjast UPIN-númers — til að stilla tækið þannig að beðið
sé um PIN-númer eða UPIN-númer í hvert sinn sem kveikt er á tækinu. Á sumum SIM-
kortum er ekki hægt að slökkva á beiðni um númerið.
● PIN2-beiðni — til að velja hvort beðið sé um PIN2-númerið þegar tiltekinn valkostur
tækisins sem er varinn með PIN2-númerinu er notaður. Á sumum SIM-kortum er ekki
hægt að slökkva á beiðni um númerið.
● Útilokunarþjónusta — til að loka fyrir símtöl í og úr tækinu (sérþjónusta). Krafist
er lykilorðs vegna útilokunar.
● Fast númeraval — til að takmarka úthringingar í valin símanúmer ef SIM-kortið
styður aðgerðina. Þegar fast númeraval er á eru GPRS-tengingar ekki mögulegar
nema þegar textaboð eru send um GPRS-tengingu. Í því tilviki verða símanúmer
viðtakandans og skilaboðamiðstöðvarinnar að vera á listanum yfir númer í föstu
númeravali.
● Lokaður not.hópur — til að tilgreina hóp fólks sem hægt er að hringja í og sem
getur hringt í þig (sérþjónusta).
● Öryggisstig — Veldu Sími til að stilla tækið þannig að beðið sé um öryggisnúmer í
hvert skipti sem nýtt SIM-kort er sett í tækið. Ef Minni er valið biður tækið um númerið
þegar SIM-kortið er valið og þú vilt velja annað minni.
● Aðgangslyklar — til að breyta öryggisnúmerinu, PIN-, UPIN- eða PIN2-númerinu,
eða lykilorði útilokunar
● Númer í notkun — til að velja hvort PIN- eða UPIN-númerið eigi að vera virkt
● Heimildavottorð eða Notandavottorð — til að skoða lista yfir heimilda- eða
notandavottorð sem hlaðið hefur verið niður í tækið.
Sjá „Vottorð“, bls. 66.
● Still. öryggiseiningar — til að skoða Um öryggiseiningu, virkja PIN
öryggiseiningar eða breyta PIN fyrir öryggiseiningu eða PIN fyrir undirskrift.
Sjá
„Aðgangslyklar“, bls. 11.