
Þráðlaus Bluetooth-tækni
Með þráðlausri Bluetooth-tækni er hægt að tengja tækið við samhæft Bluetooth-tæki
sem er í innan við 10 metra fjarlægð. Þar sem tæki sem nota Bluetooth-tækni hafa
samskipti sín á milli með útvarpsbylgjum, þurfa tækið þitt og önnur tæki ekki að vera í
S t i l l i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
41

beinni sjónlínu, enda þótt tengingin geti orðið fyrir áhrifum vegna hindrana eins og
veggja eða truflana frá öðrum raftækjum.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR sem styður eftirfarandi snið:
generic access, network access, generic object exchange, advanced audio distribution,
audio video remote control, hands-free, headset, object push, file transfer, dial-up
networking, SIM access og serial port. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem
styðja Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa
tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra við
þetta tæki.
Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á sumum stöðum. Kanna skal það
hjá yfirvöldum á staðnum eða þjónustuveitunni.
Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni
meðan aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og minnka endingu
rafhlöðunnar.