Uppsetning Bluetooth-tengingar
Veldu Valmynd > Stillingar > Tengimöguleikar > Bluetooth og svo einhvern af
eftirtöldum valkostum:
● Bluetooth — Veldu Kveikja til að ræsa Bluetooth-aðgerð. sýnir að Bluetooth-
tenging er virk.
● Sýnileiki símans míns — til að tilgreina hvernig tækið sést í öðrum Bluetooth-
tækjum
● Leita að hljóðaukahl. — til að leita að samhæfum Bluetooth hljóðtækjum. Veldu
tækið sem þú vilt tengja við símann.
● Virk tæki — til að sjá hvaða Bluetooth-tenging er virk þá stundina
● Pöruð tæki — til að leita að öllum Bluetooth-tækjum á svæðinu. Veldu Nýtt til að
birta lista yfir Bluetooth-tæki innan svæðisins. Veldu stillingu og svo Para. Sláðu inn
Bluetooth-lykilorð tækisins (allt að 16 stafir) til að para tækið við tækið. Aðeins þarf
að gefa upp þetta lykilorð þegar tengst er við tækið í fyrsta skiptið. Tækið tengist þá
við hitt tækið og hægt er að hefja gagnaflutninginn.
● Nafn símans míns — til að velja heiti tækis fyrir Bluetooth-tengingar
Hafir þú áhyggjur af öryggi skaltu slökkva á Bluetooth-virkninni eða breyta stillingunni
Sýnileiki símans míns í Falinn. Ekki skal samþykkja Bluetooth-tengingar nema frá
traustum aðilum.