Raddskipanir
Þú getur hringt í tengilið og framkvæmt aðgerðir í tækinu með raddskipunum.
Raddskipanir eru háðar tungumáli og þú verður að stilla Tungumál raddk. áður en
raddskipanir eru notaðar.
Sjá „Sími“, bls. 45.
Til að velja valkosti tækisins sem á að virkja með raddskipunum skaltu velja Valmynd >
Stillingar > Eigin flýtivísar > Raddskipanir og velja möppu. Veldu einhvern valkost.
merkir að raddmerkið sé virkt. Raddmerkið er gert virkt með því að velja Bæta
við. Ef þú vilt spila virkjaða raddmerkið skaltu velja Spila.
Sjá „Raddstýrð
hringing“, bls. 22.
Unnið er með raddskipanir með því að velja valkost símans og Valkostir og svo eitthvað
af eftirfarandi:
● Breyta eða Fjarlægja — til að breyta eða slökkva á raddskipun valkostsins
● Virkja allar eða Óvirkja allar — til að virkja eða óvirkja raddskipanir fyrir alla valkosti
á raddskipanalistanum