Pakkagögn
GPRS-tækni (General Packet Radio Service) er sérþjónusta sem gerir farsímanotendum
kleift að senda og taka á móti gögnum um net sem byggir á internetsamskiptareglum
(Internet Protocol, IP).
Tilgreint er hvernig þjónustan er notuð með því að velja Valmynd > Stillingar >
Tengimöguleikar > Pakkagögn > Pakkagagnatenging og einn af eftirtöldum
valkostum:
S t i l l i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
42
● Þegar þörf er — til að koma á tengingu þegar eitthvert forrit þarf á henni að halda.
Tengingunni er lokað um leið og forritinu.
● Sítenging — til að stilla tækið þannig að það skráist sjálfkrafa á pakkagagnanet
þegar kveikt er á því.
Hægt er að tengja tækið við samhæfa tölvu með þráðlausri Bluetooth-tengingu eða
USB-gagnasnúru og nota það sem mótald til að koma á GPRS tengingu úr tölvunni.
Til að tilgreina stillingar á tengingum frá tölvunni þinni skaltu velja Valmynd >
Stillingar > Tengimöguleikar > Pakkagögn > Stillingar pakkag. > Virkur
aðg.staður, og virkja aðgangsstaðinn sem þú vilt nota. Veldu Breyta virk. aðg.stað >
Heiti á aðgangsstað, sláðu inn nafn til að breyta stillingum aðgangsstaðar og veldu Í
lagi. Veldu Aðg.staður pakkag., sláðu inn heiti aðgangsstaðarins (APN) til að koma á
tengingu við kerfið og veldu Í lagi.
Komdu á internettengingu með því að nota símann þinn sem mótald.
Sjá „Nokia PC
Suite“, bls. 67.
Ef stillingar hafa bæði verið valdar í tölvunni og í tækinu eru stillingar
tölvunnar notaðar.