Nokia 7500 Prism - Pakkagögn

background image

Pakkagögn

GPRS-tækni (General Packet Radio Service) er sérþjónusta sem gerir farsímanotendum

kleift að senda og taka á móti gögnum um net sem byggir á internetsamskiptareglum

(Internet Protocol, IP).
Tilgreint er hvernig þjónustan er notuð með því að velja Valmynd > Stillingar >

Tengimöguleikar > Pakkagögn > Pakkagagnatenging og einn af eftirtöldum

valkostum:

S t i l l i n g a r

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

42

background image

Þegar þörf er — til að koma á tengingu þegar eitthvert forrit þarf á henni að halda.

Tengingunni er lokað um leið og forritinu.

Sítenging — til að stilla tækið þannig að það skráist sjálfkrafa á pakkagagnanet

þegar kveikt er á því.

Hægt er að tengja tækið við samhæfa tölvu með þráðlausri Bluetooth-tengingu eða

USB-gagnasnúru og nota það sem mótald til að koma á GPRS tengingu úr tölvunni.
Til að tilgreina stillingar á tengingum frá tölvunni þinni skaltu velja Valmynd >

Stillingar > Tengimöguleikar > Pakkagögn > Stillingar pakkag. > Virkur

aðg.staður, og virkja aðgangsstaðinn sem þú vilt nota. Veldu Breyta virk. aðg.stað >

Heiti á aðgangsstað, sláðu inn nafn til að breyta stillingum aðgangsstaðar og veldu Í

lagi. Veldu Aðg.staður pakkag., sláðu inn heiti aðgangsstaðarins (APN) til að koma á

tengingu við kerfið og veldu Í lagi.
Komdu á internettengingu með því að nota símann þinn sem mótald.

Sjá „Nokia PC

Suite“, bls. 67.

Ef stillingar hafa bæði verið valdar í tölvunni og í tækinu eru stillingar

tölvunnar notaðar.