
Skjár
Veldu Valmynd > Stillingar > Skjástillingar og svo einhvern af valkostunum sem
eru í boði:
● Veggfóður — til að bæta við bakgrunnsmynd við biðstöðu
● Virkur biðskjár — til að kveikja eða slökkva á virkum biðskjá og til að skipuleggja
skjáinn
● Leturlitur biðstöðu — til að velja lit skjátextans í biðstöðu
● Tákn fyrir stýrihnapp — til að birta táknin fyrir flýtileiðir skruntakkans í biðstöðu
þegar slökkt er á virka biðskjánum
● Skjávari — til að stilla tækið á að birta skjávara. Ef þú vilt hlaða niður fleiri skjávörum
skaltu velja Hlaða niður grafík. Veldu Biðtími til að stilla tímann sem á að líða
þangað til skjávarinn verður virkur.
● Leturstærð — til að velja leturstærðina fyrir skilaboð, tengiliði og vefsíður
● Skjátákn símafyrirt. — til að velja hvort tækið birti eða feli skjátákn
símafyrirtækisins
● Uppl. um endurvarpa — til að birta upplýsingar um endurvarpann ef símkerfið
leyfir það