Tími og dagsetning
Til að breyta gerð klukkunnar, tímastillingum, tímabelti og dagsetningarstillingum
velurðu Valmynd > Stillingar > Dagur og tími > Dags- og tímastill., Snið dags
og tíma eða Sjálfv. tímauppfærsla (sérþjónusta).
Þegar þú ferðast um annað tímabelti velurðu Valmynd > Stillingar > Dagur og
tími > Dags- og tímastill. > Tímabelti: og flettir til hliðar til að velja tímabeltið á
staðnum sem þú ert á í samræmi við tímamismuninn á milli staðartíma Greenwich (GMT)
eða samræmds alþjóðatíma (UTC). Tíminn og dagsetningin eru stillt til samræmis við
tímabeltið og þannig birtist réttur senditími texta- eða margmiðlunarskilaboða.