
Flugstilling
Hægt er að loka fyrir öll samskipti til og frá símanum (útvarpsbylgjur hans) og samt spila
leiki og opna dagbókina og símaskrána.
Notaðu flugstillinguna á stöðum þar sem útvarpsbylgjur eru óleyfilegar — um borð í
flugvélum eða á sjúkrahúsum.
vísirinn sést á skjánum þegar flugstillingin er virk.
Veldu Valmynd > Stillingar > Snið > Flug > Virkja eða Eigið val til að virkja eða
setja upp flugstillingu.
Slökkt er á flugstillingunni með því að velja aðra stillingu.
Neyðarsímtal í flugstillingu Sláðu inn neyðarnúmerið, ýttu á hringitakkann og veldu
Já þegar Óvirkja flugsnið? birtist. Síminn reynir að hringja í neyðarnúmerið.
Viðvörun: Í flugsniðinu er ekki hægt að hringja eða svara símtölum, þar á meðal
neyðarsímtölum, eða nota aðra valkosti þar sem þörf er á tengingu við símkerfi. Eigi að
hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur
verið læst skal slá inn lykilnúmerið. Ef hringja þarf neyðarsímtal meðan tækið er læst
og flugsniðið er virkt kann einnig að vera hægt að slá inn neyðarnúmerið sem er forritað
í tækið í reitinn fyrir lykilnúmerið og velja 'Hringja'. Tækið staðfestir að verið sé að gera
flugsniðið óvirkt til að hefja neyðarsímtal.
T æ k i ð
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
20