
Flýtivísar símtala
Hægt er að velja símanúmer í tækinu með því að ýta á einn takka. Hægt er að tengja
símanúmer við talnatakkana 2 til 9. Til að tengja símanúmer við talnatakka velurðu
Valmynd > Tengiliðir > Hraðvals-númer og flettir að númerinu sem á að tengja
sem flýtivísi fyrir Hraðval.
Veldu Velja. Ef númer er þegar tengt við takkann skaltu velja Valkostir > Breyta.
Veldu Leita og tengiliðinn sem á að tengja við flýtivísinn. Ef Hraðval er óvirkt spyr
síminn hvort hann eigi að virkja það.
Ýttu á samsvarandi takka og haltu honum inni til að hringja með flýtivísi.
Sjá „Flýtivísar
símtala“, bls. 21.