
Stillingar
Þessar stillingar skilgreina hvar upplýsingar um tengilið eru geymdar, hvernig þær eru
birtar og hversu mikið minni er eftir.
Veldu Valmynd > Tengiliðir > Stillingar og svo einhvern af eftirtöldum valkostum:
● Minni í notkun — til að velja SIM-kortið eða minni símans fyrir tengiliðina. Veldu
Sími og SIM-kort til að sækja nöfn og númer úr báðum minnum. Þá vistast nöfnin
og númerin í minni símans.
● Sýna tengiliði — til að velja hvernig síminn birtir nöfn og númer í Tengiliðir
● Röð nafna — til að velja hvort birta eigi skírnarnafn eða eftirnafn tengiliðs fyrst
● Leturstærð — til að stilla leturstærðina fyrir tengiliðalistann
● Staða minnis — til að skoða hversu mikið minni er laust og hversu mikið er í notkun