Nokia 7500 Prism - Sprengifimt umhverfi

background image

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á sprengingum og fara að öllum

tilmælum sem sjást á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst vera á

svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél bifreiðar. Neistaflug á slíkum

svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll.

Slökkva skal á símanum á eldsneytisstöðvum, svo sem við eldsneytisdælur á

bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á notkun útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum,

svæðum þar sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

73

background image

verið er að sprengja. Svæði þar sem sprengihætta er mikil eru oftast auðkennd en þó

ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði undir þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru

geymd eða búin til flutnings; ökutæki sem nýta fljótandi svartolíugas (própan eða

bútan) og svæði þar sem í lofti eru efni eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft.